149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

afnám krónu á móti krónu skerðingar.

[15:18]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Það eru 2,9 milljarðar sem við höfum til ráðstöfunar á fjárlagaári yfirstandandi árs. Gert er ráð fyrir að frumvarp um hvernig þeim verði ráðstafað verði vonandi afgreitt úr ríkisstjórn sem fyrst þannig að við getum rætt það og lokið fyrir þinglok. Mikilvægt er að þeir fjármunir séu nýttir á yfirstandandi ári. Ég vonast til þess. Við höfum kynnt stjórn Öryrkjabandalagsins áform um með hvaða hætti við hyggjumst ráðstafa þeim og erum að skoða ákveðna þætti sem það benti á. Í framhaldinu getur þetta frumvarp vonandi orðið að lögum fyrir þinglok.

Hins vegar vil ég ítreka að það er gríðarlega mikilvægt þegar við tökum þessa umræðu að draga úr nýgengi örorku og ég vonast til þess að hv. þingmaður komi í lið með okkur í ríkisstjórninni í því. Upphæðin sem ég nefndi áðan, 41 milljarður 2016, verður 90 milljarðar árið 2030 ef ekkert er að gert. Ef ekki eru auknar tekjur við þá hópa sem þarna um ræðir (Forseti hringir.) verður auðvitað ekki mikið aflögu. Þess vegna verðum við í sameiningu að stíga þau skref og ég kalla eftir því að hv. þingmaður fylgi ríkisstjórninni í því.