Isavia og skuldir WOW.
Hæstv. forseti. Mikið hefur verið rætt í fjölmiðlum undanfarið um flugsamgöngur á Íslandi. Eftir fall WOW air í lok mars sl. kom í ljós að Isavia, sem er opinbert hlutafélag, hafði um nokkurt skeið vitað af rekstrarvanda félagsins.
Bankahrunið er okkur öllum í fersku minni. Aðdragandi þess og afleiðingar gleymast vonandi seint. Sá sem ekki lærir af sögunni er dæmdur til að endurtaka hana. Það sem læra má m.a. af hruninu er að stjórnvöld og eftir atvikum eftirlitsaðilar brugðust skyldum sínum, skyldum um eftirlitshlutverk og eftirfylgni þegar ljóst var að ákveðin fyrirtæki voru ekki rekstrarhæf eða stóðu frammi fyrir rekstrarvanda sem þurfti að taka á áður en í óefni væri komið. Afleiðingar þessarar meðvirkni og aðgerðaleysis urðu þær að íslensk heimili, skattborgarar og lífeyrisþegar urðu fyrir búsifjum sem fólk er í sumum tilfellum enn að glíma við.
Isavia er hlutafélag í opinberri eigu og handhafi hlutabréfsins fyrir hönd ríkisins er hæstv. fjármálaráðherra. Mig langar til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra tveggja spurninga:
Hefur eða hafði Isavia ohf. heimildir til að gefa einstökum flugrekendum greiðslufresti eða sérkjör á til að mynda lendingargjöldum eða þjónustugjöldum og þar með samkeppnisforskot á frjálsum markaði Evrópska efnahagssvæðisins eða með því að innheimta ekki þær skuldir sem eru þó almannafé? Ef svo er, hverjar eru þær heimildir nákvæmlega og hvar eiga þær heimildir sér stað í lögum eða reglugerðum? Hver er til þess bær að veita slíkar heimildir?
Í annan stað: Höfðu hæstv. fjármálaráðherra og eftir atvikum aðrir ráðherrar í ríkisstjórn haft upplýsingar um aðgerðir eða eftir atvikum aðgerðaleysi opinberra eftirlitsaðila eins og Samgöngustofu eða rekstraraðila eins og Isavia ohf.? Og ef svo er, hversu lengi höfðu ráðherrar og ráðuneyti búið yfir þeim upplýsingum fyrir fall flugfélagsins?