Isavia og skuldir WOW.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það vill svo skemmtilega til að hann er akkúrat starfandi í þessum bransa. Ég vil byrja á að halda því til haga að Isavia er ekki eftirlitsaðili með starfsemi flugfélaga. Isavia er hlutafélag sem starfar á viðskiptalegum forsendum. Það er ekki Isavia sem gefur út rekstrarleyfi flugfélaga. Það er ekki skilyrði fyrir starfsemi flugfélags að Isavia hafi þurft að koma þar að málum. Og það er ekki Isavia sem tekur ákvörðun um að félagið lendi í greiðsluerfiðleikum með skuldbindingar sínar, heldur er Isavia, eins og margir og allir aðrir kröfuhafar flugfélagsins sem í hlut á, í viðskiptum við það á viðskiptalegum forsendum.
Heimildirnar liggja í rekstrarforminu. Þær liggja í hlutafélagaforminu sem slíku. Mér er ekki kunnugt um annað en að ákvarðanir sem teknar hafa verið af stjórn Isavia byggi á viðskiptalegum forsendum.
Hv. þingmaður fullyrðir hér að heimilin í landinu hafi orðið fyrir búsifjum vegna starfsemi þessa flugfélags. (JÞÞ: Bankahrunsins.) Vegna bankahrunsins. Gott og vel, þá hef ég misskilið eitthvað. En ég vil halda því til haga hér að hagkerfið allt verður fyrir áhrifum af því að þetta flugfélag hætti starfsemi. Hagkerfið hefur þó á sama tíma notið mjög góðs af bæði samkeppninni sem verið hefur í flugrekstri til landsins og síðan af umsvifum félagsins. Stjórnvöld hafa fylgst mjög vel með, bæði á vettvangi ráðherranefnda en einnig ráðherrar á sínu fagsviði (Forseti hringir.) eftir því sem efni hafa staðið til, allt frá því að í ljós kom að félagið átti í erfiðleikum með að fjármagna sig í gegnum skuldabréfaútboð síðasta haust.