149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

Isavia og skuldir WOW.

[15:24]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég var kannski ekki alveg nógu skýr en í innganginum talaði ég um bankahrunið í samhengi við það að ekki væri í raun og veru nægjanleg eftirfylgni hjá eftirlitsaðilum. Ég tengdi þetta saman á þann hátt. En spurning mín sneri einkum að því hversu lengi mönnum hefði verið ljóst að um rekstrarvanda væri að ræða og kannski svo alvarlegan að ekki væri forsvaranlegt að grípa inn í á fyrri stigum.

Það er ljóst að ef fyrirtæki er í rekstri og fær samkeppnisforskot á þessum forsendum getur það skaðað annað fyrirtæki á meðan og eins og í þessu tilfelli varð vissulega margt fólk fyrir búsifjum, starfsfólk flugfélagsins, hugsanlega skattgreiðendur (Forseti hringir.) og síðast en ekki síst ríkissjóður. Til að mynda má nefna að opinber gjöld eins og lífeyrisgreiðslur höfðu ekki borist síðustu mánuði fyrir fall félagsins.