nýir kjarasamningar og fjármálaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég skil það þannig að þessi fyrirspurn snúist um það hvaða áhrif yfirlýsingin hefur á fjármálaáætlunina. Þá er því til að svara að uppistaðan af aðgerðunum eru mál sem eru þegar fjármögnuð í fyrirliggjandi áætlun. Þannig má nefna sem dæmi að tekjuskattsbreytingarnar hafa verið inni í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar og það svigrúm sem var ætlað til skattalækkana og bótakerfabreytinga er enn þar inni. Viðbót við þær breytingar þarf að fjármagna. Ég hygg að þetta muni skýrast nánar við endanlega afgreiðslu á fjármálaáætlun og í vinnslu fjárlaganefndar. Til að fá botn í þá vinnu alla þurfum við fyrst að uppreikna tekju- og gjaldahliðina þannig að við sjáum hvernig heildarmyndin lítur út með nýju hagspána í höndunum.
Í grunninn er svarið það að að langmestu leyti, að því marki sem þurfti sérstakri fjármögnun, er hana að finna í fyrirliggjandi fjármálaáætlun. Að einhverju leyti mun þurfa sérstakar ráðstafanir sem þarf þá að finna svigrúm fyrir og forgangsraða fyrir. Síðan eru líka dæmi um aðgerðir sem munu ekki kosta neitt. Má ég nefna sem dæmi að ég mælti í vikunni fyrir frumvarpi um framlengingu á heimild til úttektar á séreignarsparnaði í tvö ár í viðbót. Það mun engin áhrif hafa, hvorki á tekju- né gjaldahliðina, á næstu árum að framlengja þá heimild. Þar erum við með dæmi um aðgerð sem er til stuðnings lífskjarasamningunum án þess að hún hreyfi við fjármálaáætlun.