149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

nýir kjarasamningar og fjármálaáætlun.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Mér liggur við að segja að það væri best fyrir hv. þingmann að ná tali af forystumönnum stéttarfélaganna, sem lýstu mikilli ánægju með þessa yfirlýsingu, og spyrja þá hreinlega: Bíddu, hvað var það sem þið fenguð út úr samningunum sem skiptir svona miklu máli? Ég held að ég get alveg sagt fyrir okkur sem stóðum að samningunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að það skiptir öllu máli hvernig t.d. skattbreytingarnar eru útfærðar. Við vissum hvert svigrúmið var en við vorum ekki búin að smíða útfærslu á dreifingu þess svigrúms. Við lögðum fram útreikninga um það hvernig við gætum tryggt að heildarmarkmiðinu um að lyfta mest undir með þeim sem minnst höfðu milli handanna yrði náð. Það liggur í útfærslunni. Það liggur í því að við búum til nýtt, lægra skattþrep og gerum aðrar breytingar á tekjuskattskerfinu sem við höfum verið að ræða. Þannig má segja að útfærslan á breytingu fæðingarorlofs, á breytingu réttinda til barnabóta, á útfærslu tekjuskattsbreytinga o.s.frv. hafi verið atriðin sem réðu úrslitum.