149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

kostnaður við endurskoðað lífeyriskerfi.

[15:33]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju með niðurstöðu starfshóps um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu sem skilað var til ráðherra í síðustu viku. Í grunninn sýnist mér þar margt um góðar tillögur sem gætu gagnast til að endurskoða frá grunni núverandi lífeyriskerfi sem hefur að mörgu leyti komið okkur í mikinn vanda og er að mínu viti ein meginorsök þess að við sjáum jafn mikið nýgengi örorku og raun ber vitni.

Þar ber hæst krónu á móti krónu skerðinguna sem ein og sér veldur því að hvati öryrkja til atvinnuþátttöku er verulega skertur, ef nokkur heita mætti. Þetta eru um margt, eins og ég segi, ágætar tillögur og kunnuglegar, taka m.a. mið af tillögum faghóps sem skipaður var um mitt ár 2017 og tillögum fyrri starfshópa um sama málefni. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að tillögurnar séu með engu móti fjármagnaðar í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Hæstv. ráðherra hefur lagt á það höfuðáherslu frá upphafi og ítrekað lýst því yfir að meginþungi þessara breytinga verði einmitt afnám krónu á móti krónu skerðingarinnar. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra í fyrsta lagi: Hvenær má gera ráð fyrir því að tillögur starfshópsins komi til framkvæmda að fullu? Í öðru lagi, og ég hef svo sem áður spurt hæstv. ráðherra út í það: Hvert er kostnaðarmatið á þeim tillögum sem þarna liggja fyrir og hvernig hyggst hæstv. ráðherra fjármagna þær breytingar sem þar er um að ræða?