kostnaður við endurskoðað lífeyriskerfi.
Virðulegur forseti. Það liggur auðvitað ljóst fyrir að hluti af þessari vinnu felst í því að koma upp hlutastörfum og sveigjanlegum störfum og styðja við atvinnulíf, hvort sem er á almennum eða opinberum markaði. Útfærslan á því hvernig það verður gert liggur hins vegar ekki nákvæmlega fyrir og þar af leiðandi liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað það muni kosta. Þarna er búið að marka leiðina, að við ætlum að feta þessa braut. Þær breytingar sem við gerum á almannatryggingakerfinu núna munu styðja við það. Við frumvarpsgerð og við undirbúning að þessu fáum við nákvæmlega út hver kostnaðurinn verður og þá munum við sækja fjármagnið til Alþingis.
Ég og hv. þingmaður áttum sambærilega umræðu um fæðingarorlofskerfið fyrir ári síðan þar sem hv. þingmaður hélt sömu ræðuna um að ríkisstjórnin væri með ófjármagnaðar tillögur vegna fæðingarorlofs. Þegar fram liðu stundir kom fjármagn sem fylgdi því. Það verður með sama hætti með þetta, virðulegur þingmaður, fjármagnið mun að sjálfsögðu fylgja þegar við erum tilbúin til þess. En meðan við erum að útfæra þetta nákvæmlega og klára útfærsluna liggur það ekki fyrir, (Forseti hringir.) ekki frekar en í fæðingarorlofinu. Hv. þingmaður mætti gjarnan koma og spyrja um fæðingarorlofið núna vegna þess að þá myndi það sjást að í þessu máli er hann kominn í hring eins og í því.