149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:11]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Sá lagalegi fyrirvari hefur verið orðaður í yfirlýsingum af hálfu íslenskra stjórnvalda og í sameiginlegri yfirlýsingu EFTA-ríkjanna, nú síðast frá 8. maí. Efnislega er hann alveg samhljóða þótt hann birtist hugsanlega með mismunandi orðalagi. Enda eru það efnisatriðin sem eru skýr í þessu, ef hv. þingmaður er í einhverjum vafa um hvað það þýðir að íslensk stjórnvöld gefi þessa yfirlýsingu, í tilviki fundarins í sameiginlegu EES-nefndinni 8. maí með aðild hinna EFTA-ríkjanna, sem felur þetta nákvæmlega í sér, að ekki verði um að ræða að þau atriði sem varða regluverk, tengingar milli landa í gegnum sæstreng, (Forseti hringir.) þær komi til athugunar og umfjöllunar áður en ákvörðun um slíkan sæstreng verður nefnd. (Forseti hringir.) Um þetta er efnislega enginn vafi. Það er enginn vafi um það, hvorki innan lands gagnvart því sem komið hefur fram af hálfu íslenskra stjórnvalda né sá fyrirvari sem hefur verið kynntur, (Forseti hringir.) bæði munnlega og bréflega, gagnvart aðildarþjóðum Evrópska efnahagssvæðisins á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar.

(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörk.)