149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:20]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði að spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég hef spurt a.m.k. tvo aðra hv. þingmenn sem þó voru andsnúnir málinu, en hún varðar þennan stjórnarskrárlega fyrirvara og líkurnar á því að sæstrengur verði byggður. Nú virðist liggja í loftinu að með því að samþykkja þetta mál aukist líkurnar á því að sæstrengur verði lagður, nokkuð sem ég sé ekki með því að lesa málið sjálft. Upprunalega sagan var, þegar þetta mál bar fyrst á góma í almennri umræðu, að þetta neyddi okkur til að leggja sæstreng, að ESB væri að segja okkur að leggja sæstreng. Það var leiðrétt hratt. Þá kom þessi saga að það myndi auka líkurnar og hún hefur svolítið lifað áfram.

Við lestur málsins, og sér í lagi við að skoða þennan stjórnarskrárlega vafa sem sérfræðingarnir títtnefndu hafa bent á, fæ ég ekki betur séð en að með samþykkt þessa máls myndu líkur á lagningu sæstrengs þvert á móti minnka eða í það minnsta torvelda lagningu sæstrengs. Ég dreg þá ályktun út frá því að við þetta mál án fyrirvara sé til staðar þessi meinti stjórnarskrárlegi vafi sem ég trúi reyndar sjálfur ekki á. Ég tel þetta valdframsal vera mjög skýrt og á afmörkuðu sviði við lestur reglugerðarinnar og gef ekkert fyrir það að ACER hafi einhver óeðlileg áhrif á ESA þannig að það sé í bága við tveggja stoða kerfið.

Maður vill hafa sérfræðingana rólega og alla sem hafa áhyggjur af því að við séum að brjóta stjórnarskrá og ég ber virðingu fyrir því. En sá stjórnarskrárlegi vafi sem er uppi, áður en til fyrirvarans kemur, hlýtur að koma til baka ef fram kemur tillaga um að leggja sæstreng sem ég myndi halda að myndi þá torvelda lagningu sæstrengs, það eru svona aukaskref sem þyrfti að fara í gegnum. Það myndi gera umræðuna miklu erfiðari og lengri en ef sett væri fram slík tillaga í dag vegna þess að í dag eru náttúrlega (Forseti hringir.) engin stjórnarskrárleg vandamál við það að leggja sæstreng.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvað honum finnst um þessa greiningu vegna þess að ég met álit hans (Forseti hringir.) sérstaklega sem stuðningsmanns málsins.

(Forseti (GBr): Forseti biður þingmenn í hliðarsal að hafa hljóð meðan ræður eru fluttar í þingsal.)