149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mig langar að koma upp og óska eftir því að forseti hlutist til um að kalla eftir því frá þeim ráðherra sem við á, hvort sem það verður þegar þar að kemur hæstv. utanríkisráðherra eða hæstv. iðnaðarráðherra sem formar hinn eiginlega fyrirvara, því að það vakti athygli mína áðan í andsvari hv. þm. Birgis Ármannssonar við spurningu hv. þm. Ólafs Ísleifssonar að vísað er í, ef ég skildi svarið rétt, að fyrirvarinn margumræddi sé fréttatilkynning utanríkisráðherra á heimasíðu utanríkisráðuneytisins frá 22. mars 2019. Það væri ágætt ef hv. þm. Birgir Ármannsson, sem mér sýnist vera búinn að biðja um orðið, leiðrétti þetta því að ég trúi því hreinlega ekki að það sé fyrirvarinn mikli sem öllu á að halda til haga.