ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið síðara sinni. Það er einmitt höfnun sem við erum að tala um ef við neitum að innleiða. Þá erum við að senda málið aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar á byrjunarreit. Það þýðir lögformlega að orkupakkinn verður ekki tekinn upp í EES-samninginn, aðkomu Norðmanna og Liechtenstein þarf þá aftur til að semja um málið að nýju við Evrópusambandið. Það er höfnun, það er að beita neitunarvaldinu, þeim neyðarhemli sem hér er ítrekað talað um.
Jafnframt er vert að hafa í huga í alþjóðasamskiptum og um trúverðugleika okkar í alþjóðasamskiptum að eitt af megineinkennum Evrópusamstarfsins er að hlustað er á fullyrðingar um ríka hagsmuni einstakra ríkja þegar færð eru sterk og sannfærandi rök fyrir því. Það sama gildir auðvitað um samstarf okkar við t.d. Norðmenn sem þegar hafa aflétt stjórnskipulegum fyrirvara og samþykkt að taka orkupakkann upp og eiga mjög mikla og ríka hagsmuni undir viðskiptum við sameiginlegan evrópskan raforkumarkað. Við förum ekki til baka til þeirra og segjum: Við höfnum (Forseti hringir.) þessu af því bara. Þetta skiptir okkur kannski ekkert rosalega miklu máli, en við ákveðum samt að hafna þessu.