149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:44]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við reiknuðum þetta bara sjálf, með öllum fyrirvörum við það. Að sjálfsögðu væri gott að fá álit frá fleiri aðilum hvað það varðar. Upphæðirnar eru hins vegar þannig, skipt niður á orkuframleiðsluna, að það er ekkert svo erfitt að reikna það út. Og út af þessari spurningu þá finnst mér eiginlega stórkostlega magnað að hv. þingmaður hafi ekki nýtt tækifærið í nefndarvinnunni og spurt um nákvæmlega þetta. Af hverju var ekki spurt um það þá? Okkur fannst það ekkert rosalega erfitt. Við bara tókum töluna, reiknuðum þetta, sáum að þetta var ekkert sérstakt til að hafa áhyggjur af, hundraðkall á ári fyrir heimili eða svo, væri alla vega af þeirri stærðargráðu að við þyrftum ekki að elta það neitt frekar. En hv. þingmaður hefur væntanlega áhyggjur af þessu, hann ætti endilega að prófa að reikna sjálfur.