149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:45]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er merkileg ræða sem hér var flutt. Ég vil taka einn punkt út úr þessu, lögveð í þriðja orkupakkanum, áherslu á að styrkja áfram innri markað fyrir raforku og að gripið verði til frekari aðgerða til að tryggja Evrópubúum sjálfbæra, örugga og samkeppnishæfa orku. Orkustefnan er jafnframt tengd 20/20/20-markmiðunum, þ.e. að árið 2020 skuli endurnýjanlegir orkugjafar sjá ríkjum fyrir a.m.k. 20% orkuþarfarinnar, orkunýtni aukin um 20% og losun gróðurhúsalofttegunda minnkuð um 20%. Þarna er komið þetta hugtak, 20/20/20.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort Íslendingar hafi einhvern hag af því að innleiða orkuöggjöf ESB.