149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:49]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er allt gott og vel. Ólíkt stærstu aðildarríkjum ESB er Ísland auðugt af hreinni endurnýjanlegri orku. Við kyndum húsin okkar með jarðvarma en ekki olíu og gasi eins og algengt er í löndum innan ESB. Raforkan er í dag ódýrari hér en í flestum löndum Evrópusambandsins. Þá dettur mér í hug: Getum við treyst því að ESB-ríkin muni setja reglur sem henta aðstæðum okkar? Til að hnýta aftan við það eru 62,5% þjóðarinnar á móti þessum pakka. Mér finnst það stundum gleymast í umræðunni.