ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Einn af fræðimönnunum sem komu fyrir utanríkismálanefnd sagði að þessi lagalegi fyrirvari væri bara til heimabrúks. Það er ekki svo gott ef það er niðurstaða fræðimanna að hann sé bara til heimabrúks.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann tveggja spurninga ef ég kem þeim að. Í fyrsta lagi hvort hann hafi ekki smááhyggjur af því að þau skref sem við höfum verið að taka undanfarið og þetta skref líka þýði að við séum smám saman að taka skrefið til fulls inn á hinn sameiginlega evrópska orkumarkað. Ég hef áhyggjur af því að þetta sé liður í því og þess vegna er ég svona varkár í þessu öllu saman. Ekki síst vegna þess að á síðasta ári þá sáum við það að Frakkar eru við það að láta undan kommisjóninni í Brussel líklega, kröfum þeirra um að skipta upp frönskum ríkisorkufyrirtækjum. Brusselvaldið hefur pínt Frakka í mörg ár til að reyna að skipta þeim upp. Þess vegna spyr maður hvort það sé ekki áhyggjuefni ef við erum smám saman að taka skref í þá átt. Ég er ekki að segja að við séum að taka skrefið til fulls núna en þetta gæti verið eitt lítið skref í þá átt. Á endanum, eftir orkupakka fjögur, fimm eða sex, séum við komin þangað.