149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:00]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég velti fyrir mér hversu lengi við eigum að standa í þessari umræðu í dag. Einhvern orðróm heyrði ég um að hún ætti að vera jafnvel fram yfir miðnætti en mér finnst það eiginlega ekki skynsamlegt. Hér eru sárafáir að fylgjast með, flestir á annarri ræðu sinni og margt komið fram. Við eigum býsna langa og erfiða daga fyrir höndum, bæði í nefndum og í þingsal. Það er því langbest að við reynum að finna eitthvert skynsamlegt form á þetta. Ég beini því til forseta að leitast við að ná sátt meðal þingflokka um með hvaða hætti við höldum þessari umræðu áfram og hversu lengi.