149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:01]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það er mikilvægt fyrir okkur þingmenn að fá að vita hvenær þingfundi á að ljúka. Hvenær ætlar forseti að ljúka þessum þingfundi? Vissulega var samkomulag um að hér yrði kvöldfundur. En hversu langur á hann að vera? Það þurfum við að fá að vita. Klukkan níu í fyrramálið hefjast nefndafundir og við þingmenn þurfum að fá tækifæri til að skipuleggja vinnu okkar. Ég óska eftir því að forseti upplýsi um það hversu lengi þessi þingfundur á að standa.