um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Þegar maður heyrir að það eigi að fara fram yfir miðnætti, einmitt þegar nefndafundir verða tiltölulega snemma í fyrramálið — kannski ekkert rosalega snemma miðað við ýmsa aðra sem mæta í vinnu — leiðir maður hugann að því að við erum ekki undir neinni vinnulöggjöf um hvíldartíma eða neinu því um líku. En það mætti samt alveg íhuga það.
Ef á að byrja nefndafundi um níu ættum við ekki að vera mikið lengur en til miðnættis. Það er alla vega uppástunga mín, ekki að það hafi verið rætt neitt sérstaklega fram og til baka, alla vega ekki svo ég viti til. En það er a.m.k. mín hugmynd. Ég tek því undir hvatningu þeirra þingmanna sem hafa komið hingað að ekki verði næturfundur. Það er alger óþarfi, enda eru líka löng og ströng nefndastörf núna á næstu dögum og ég hef engan áhuga á að vera einhver uppvakningur á þeim nefndafundum, enda er farið yfir mjög mikilvæg og stór mál á þeim fundum og maður þarf að fylgjast mjög vel með gestum sem koma með athugasemdir. Maður hefur séð eftir svona langa daga að sumir nefndarmenn depla stundum kannski aðeins augunum (Forseti hringir.) þegar það er sem erfiðast að vinna.