um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil taka undir þá hvatningu sem sett hefur verið fram, af hálfu hv. þingmanna Loga Einarssonar og Oddnýjar Harðardóttur, um að þessum fundi verði frestað á skynsamlegum tíma. Þau hafa teflt fram góðum og gildum ástæðum, m.a. þeim að mikil verkefni bíða í nefndum í fyrramálið. Til að mynda var boðaður fundur í atvinnuveganefnd klukkan níu og þar bíða mikil og stór mál.
Því til viðbótar vil ég bæta að komið hafa fram nýjar upplýsingar varðandi orkupakkamálið sem við höfum verið að ræða, sérstaklega þennan svokallaða lagalega fyrirvara sem er nú komið stórt spurningarmerki við. Það myndi þá gefa aukið rými til að fjalla nánar um það mál.