149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég verð aðeins að gera athugasemd við ræðu hv. þm. Smára McCarthys áðan. Hann talaði um að röksemdafærsluhæfni fólks færi hrakandi eftir því sem liði á kvöldið. Ég held reyndar að það breyti engu hvort klukkan sé átta að kvöldi eða tvö að nóttu. Röksemdafærslur Miðflokksins eru jafn aumar fyrir því .

Ég tek jafnframt undir hól hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur í garð sitjandi forseta. Lausnin á þeim langa kvöldfundi sem fyrir höndum er er ósköp einföld: Að fækka t.d. Miðflokksmönnum á mælendaskrá — að flytja sömu ræðuna aftur og aftur — (Gripið fram í: Hvað er þetta?) gæti stytt fundinn talsvert og myndi ekki gera málið neitt síðra hér í þingsal.