um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég er komin hingað til að taka undir ósk — ég held að rétt sé að kalla það bara kröfu — þeirra þingmanna sem hafa komið hingað upp og talað um að það sé ótækt að við höldum áfram einhverjum næturfundi. Málið er í þeim hnút sem það er, ekki endilega vegna framgöngu Miðflokksmanna sem eru bara að nýta sér rétt sinn til að ræða mál, heldur vegna þess að stjórnarflokkarnir hafa setið á þessu máli eins og ormur á — ég segi gulli, sumir segja eitthvað annað — í lengri tíma.
Nú er komin pressa. Ég sat á skrifstofunni og var að fara yfir þau mál, sem skipta hundruðum, sem sitja núna í nefndum og er ekki enn búið að taka ákvörðun um hvort eigi að klára eða í hvaða farveg þau fari. Og stjórnarflokkarnir tala enn þá um að þeir ætli að klára þingstörf á hefðbundnum tíma. Þetta mun ekki nást. Við þurfum að vera af fullum krafti. Núna tala ég kannski gegn því að vera með kvöldfundinn en nefndastörfin skipta máli. Þessi mál skipta gríðarlega miklu. Það er ótækt að hér sé svefnvana þing í fyrramálið að taka þátt í nefndastörfum um hin ýmsu mál sem þar eru. Þetta mál verður bara að hafa sinn gang og ég mæli (Forseti hringir.) sterklega gegn því að fundi sé haldið áfram fram yfir miðnætti í kvöld.