um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég verð að hluta til að taka undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni um að kannski hafi ekki verið rosalega mikið um sterk rök frá Miðflokknum í kvöld. En sú hætta er eigi að síður til staðar að þau versni. Við megum alls ekki við því. Þar að auki er líka hættulegt að okkar rök versni um leið. Þetta eru góðar ástæður fyrir því að vera ekki langt fram á kvöld.
Því er kannski við þetta að bæta úr því að hv. þingmaður — nú er ég orðinn það þreyttur að ég man ekki nöfn lengur — nefndi fjölda mála sem er í nefndum. Nú er ég búinn að vera með nokkur mál sem komin eru drög að nefndarálitum inni í nefndum, í einu tilfelli í marga mánuði, í tveimur öðrum tilfellum a.m.k. ansi lengi. Þessi mál mætti alveg afgreiða og í rauninni stendur ekki á öðru en að formenn nefnda hjálpi okkur að koma málunum út þannig að þau geti farið áfram í þinglega meðferð.