um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Fyrst vil ég gera orð hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur að mínum hvað varðar undarlega ræðu hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar áðan en geri svo sem ekki meira með hana.
Það er orðið nokkuð ljóst að mælendaskráin er ekki að fara að klárast á einhverjum forsvaranlegum tíma innan sólarhringsins. Auðvitað var rætt um kvöldfund á fundi þingflokksformanna. Ég ætla ekki að kalla það einhverjar hótanir en það eru þó einhverjar meldingar sem hægt er að lesa í gegnum orð hv. þm. Birgis Ármannssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, um að þingmenn verði látnir tala inn í nóttina ef þeir láta ekki að stjórn. Það er auðvitað ekki góð byrjun á þessu kvöldi því að hér er næsti ræðumaður Miðflokksins að koma í fyrstu ræðu. Og af þeim þremur þingmönnum af næstu tíu á mælendaskrá, sem eru fulltrúar Miðflokksins, eru tveir í sinni fyrstu ræðu. Ég skil því eiginlega ekki hvaða skilaboð er verið að senda inn í umræðuna.