um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur og hv. þm. Bergþórs Ólasonar um orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar. Þau áttu ekki við.
Það hefur verið mjög góð umræða og mjög þörf sem skýrir hvaðan áhyggjurnar koma af þessu máli og mjög gott að hafa getað svarað þeim. Við höfum loksins fengið tíma til að svara þeim áhyggjum og við þurfum að gera það. Ef sömu rök eiga að vera núna um samfellu eða eitthvað því um líkt, sem dregur okkur fram yfir miðnætti þá áttu þau náttúrlega við í gær þar sem við hættum hálftólf. Fundur á morgun til að halda samfellu í þessu? Í fínu lagi, alla vega mín vegna.
Eins og hv. þingmaður Hanna Katrín Friðriksson benti á áðan eru hundruð mála í nefndum sem þarf að sinna. Það eru rúmlega 100 stjórnarmál og um 100 þingmannamál. Við þurfum líka nefndavinnu og ekkert óeðlilegt að fara langt fram yfir miðnætti á þessum skorputímum þegar fer að nálgast þinglok. (Forseti hringir.) En núna erum við að reyna að klára mál úr nefnd.