149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:20]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegur forseti. Ég kem hingað upp út af ræðu hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar. Þegar þingmaðurinn talar um hábjartan dag og veit að margir eru að horfa er hann talsmaður frelsis, lýðræðis og jafnréttis en þegar skyggja fer kemur hann hingað og vill ekki að leyfa þingmönnum að tala. (Gripið fram í: Algjörlega …) Ég kalla hins vegar eftir því að þingmaðurinn komi í ræðu í þessu máli og upplýsi okkur um það hvers vegna honum finnist núna allt í lagi að markaðsvæða raforkuna, að flokkur hans skuli vilja taka þau skref að markaðsvæða raforku á Íslandi. Það væri nær að útskýra það fyrir okkur í staðinn fyrir að reyna að taka orðið af okkur hinum.