um fundarstjórn.
Herra forseti. Út af orðum hv. þm. Birgis Ármannssonar um að þingflokksformenn hefðu getað gert sér hlutina ljósa viðurkenni ég að ég er ekki sérstaklega reynslumikil í árum þegar kemur að þingstörfum. En ég er heldur ekki skyggn. Staðan er sú að á fundi þingflokksformanna á mánudaginn var talað um, eða gefið undir fótinn með, að það þyrfti að vera fram á kvöld á mánudegi og fram á kvöld á miðvikudegi ef svo bæri undir. Það var farið fram á kvöld á mánudegi, til miðnættis. Og það er náttúrlega ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir að þá meini menn það líka á miðvikudeginum. Ég átta mig ekki á muninum þarna á milli.
Staðreyndin er sú að sjálf myndi ég vilja klára málið sem fyrst en svona eru leikreglurnar og við þurfum að spila eftir þeim. Annað er bara algjörlega ótækt.
Það eru gríðarlega mikilvæg nefndastörf fram undan. Ég veit ekki af hverju ég er að tala fyrir þessu nefndastarfi. Það eru meira og minna stjórnarmál sem eru þar í einni hönk. En svona er maður, samviskusemin uppmáluð.
Ég segi bara þetta, svo ég vitni í ágætan félaga, þingmann Pírata, Smára McCarthy: Skipulagsleysi stjórnarflokkanna skapar ekki neyðarástand sem stjórnarandstaðan ber ábyrgð á.