um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Mig langar til að taka undir með þeim þingmönnum sem hafa komið í ræðustól og mælt með því að hér sé haldið skynsamlega á málum og að við sinnum nefndastörfunum jafnframt þar sem mörg ókláruð mál eru.
Mig langar til að minnast á að fram hefur komið í ræðu að umræðurnar hafi verið mjög góðar, og mér finnst það. Mér hefur þótt gott að geta rætt við þá sem eru mér ósammála og ég þeim í ræðustól Alþingis og myndi vilja geta gert það.
Að stungið sé upp á því að taka menn af mælendaskrá, þingmenn sem hafa ekki einu sinni komist í fyrstu ræðu, finnst mér svolítið langt gengið og held að það sé andsnúið lýðræðinu. Ég held að við ættum að halda okkur við það að kjörnir fulltrúar hafi rétt á því að tjá sig um mál samkvæmt þingsköpum.