149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:24]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að bregðast við orðum hv. þingmanns og þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, Birgis Ármannssonar, sem talaði um að það væri nú gott ef fólk væri ekki að koma hingað upp og endurtaka sig í sífellu. Það væri gaman að eiga orðastað en óþarfi að endurtaka. Mig langaði af því tilefni að benda á að af næstu tíu á mælendaskrá er einn sem er að halda aðra ræðu. Allir aðrir eru að halda fyrstu ræðu sína um þetta mál. Það kann að vera að einhver sé að endurtaka eitthvað sem einhver annar sagði. Ég veit ekki hvernig á að koma í veg fyrir það. Í svona máli sem hefur verið rætt í fjölda klukkutíma verð ég að viðurkenna að ég er ekki alveg búin að fara í gegnum öll orðin í tölvunni minni sem aðrir hafa sagt til að kanna það hvort ég sé hugsanlega að endurtaka eitthvað sem einhver hefur sagt. (Forseti hringir.)

Ræða mín verður örugglega tímamótaræða þó að vera kunni að þar verði einhver endurtekning.