um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég tek undir gagnrýni hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur á þann sem hér stendur. Í kerskni minni gerði ég at í Miðflokksmönnum og sagði að þeir væru að endurtaka hverja ræðuna á fætur annarri og það var ómaklegt, sé ég nú. Megi þeir tala sem mest.
En þingflokksformaður Miðflokksins, hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, talaði um að hér talaði ég í einum dúr í björtu og öðrum þegar dimma tekur. Fyrir það fyrsta er ekki tekið að dimma það mikið akkúrat núna og í annan stað held ég að þingmaðurinn þekki þingmenn að því að tala jafnvel enn verr þegar dimma tekur en sá sem hér stendur gerir. Ég reikna með að umræðan í kvöld verði ekki sú versta sem þingmaðurinn hefur heyrt í myrkri, þó að við tölum hér inn í nóttina.