um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég hef verið á þingi síðan 2013 og þegar líða tekur að þessum tíma í maí verða fundirnir gjarnan lengri. Það er ekki óvanalegt að fundað sé vel og langt inn í nóttina ef svo ber undir.
Nú fer þingdögum fækkandi og mörg mikilvæg mál sem við þurfum að ræða. Ég tek undir það að mér finnst bara hið besta mál að hér taki fólk til máls og ræði það sem á hjarta þess liggur. Við tökumst á um það og skiptumst á skoðunum. Til þess þurfum við tíma og ég held að við eigum að nýta þann tíma sem við höfum. Það að fara aðeins inn í nóttina er ekki eitthvað sem a.m.k. mörg okkar hafa ekki tekist á við áður og líklega flestir sem hér eru inni. Og það að fara á nefndarfund í fyrramálið? Það er líka hægt að skipta því þannig að fólk hvíli sig á milli og taki vaktaskipti ef það er leið til lausna í staðinn fyrir að fara vansvefta á fund í fyrramálið.
Það er ýmislegt hægt að gera til að létta þetta. En það er ekki mikið vandamál að vaka eina nótt á þingi.