149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

um fundarstjórn.

[20:28]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Forseta sem hér stendur finnst, eftir að hafa horft á mælendaskrá og hlustað á það sem sagt hefur verið, málefnalegt að þeir sem eru að halda sína fyrstu ræðu í málinu geti gert það í björtu og þegar fólk er að hlusta o.s.frv.

Forseti sem hér stendur bendir jafnframt á að sitjandi forseti Alþingis er hv. þm. Guðjón S. Brjánsson og hann mun á endanum hafa úrskurðarvaldið um þetta. Sá hv. þingmaður hefur setið í salnum. Ég geri ráð fyrir að hann hafi hlustað á. Ég hef fylgst með honum hlusta á þá umræðu sem hér hefur átt sér stað. Þegar sá forseti sem hér stendur hefur verið þingmaður hefur hann alltaf verið tilbúinn að taka umræðu inn í nóttina. En að þvinga aðra til að gera það við þessar kringumstæður er nokkuð sem forseti sem hér stendur mun ekki gera. Þá er það annarra að taka ábyrgð á því.