149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:30]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég hef fylgst vel með þessari umræðu hér í þingsal, frá því að hún hófst í gær, og tekið þátt í andsvörum. Það sem hefur vakið sérstaka athygli mína er sá asi sem mér finnst vera í þessu máli. Pirringur flutningsmanns tillögunnar og formanns utanríkismálanefndar gagnvart skoðunum Miðflokksmanna er einnig áberandi. Síðan hefur málflutningur Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata vakið sérstaka athygli að mínu mati. Í hverju málinu á fætur öðru styðja þau gagnrýnislaust mál ríkisstjórnarinnar. Auk þess verður ekki hjá því komist að minnast á þær tilraunir fylgismanna tillögunnar til að gera lítið úr málflutningi okkar Miðflokksmanna. Við erum sakaðir um hræðsluáróður og að fara með rangfærslur.

Ég gat þess í fyrri umræðunni hér í þingsal að rafmagn til húshitunar á köldum svæðum hefði hækkað um allt að 90% við innleiðingu orkupakka eitt. Þá kölluðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins hér úr sal að það væri ósatt. Ég ítrekaði þetta í útvarpsþættinum Vikulokin á Rás 1 í síðustu viku við formann utanríkismálanefndar sem einnig var í þættinum. Hún sagði margsinnis að þetta væri rangt hjá mér. Nú get ég glatt þessa sömu þingmenn með því að ég get sýnt þeim þetta hér svart á hvítu, að rafmagn til húshitunar á veitusvæði Hitaveitu Suðurnesja hækkaði vegna breytinga á raforkulögum við innleiðingu orkupakka eitt. Hækkunin nam á bilinu 74–96%. DV birti m.a. frétt um málið 9. febrúar 2005. Hér er að finna ljósrit af þeirri frétt. Hér er tekið dæmi af rafmagnsreikningum frá einum fjórum sveitabæjum. Sýndur er reikningur frá 28. desember 2004 og svo mánuði síðar, þ.e. 25. janúar 2005. Hækkunin er 74% á þessum bæ. Síðan er tekinn annar bær, þar er hækkunin 85%. Þriðji bærinn, þar er hækkunin 96%. Og síðan fjórði bærinn, þar er hækkunin 77%.

Hér höfum við þetta svart á hvítu, herra forseti. Og svo er ég sakaður um það af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að segja ósatt og að þetta sé rangt. Stjórnarþingmönnum væri sæmst að láta af því að saka okkur í Miðflokknum um rangfærslur og í raun ættu þeir að biðjast afsökunar á þessum ummælum sínum í minn garð.

Rökin fyrir því að Íslendingar innleiddu orkulöggjöf Evrópusambandsins árið 2003 voru þau að hún væri svo ljómandi góð fyrir neytendur, og ég hef hrakið þá fullyrðingu hér. Rökin fyrir innleiðingu orkupakka þrjú eru þau að við verðum að samþykkja vegna þess að málið komi ekki til með að hafa neitt gildi fyrir okkur, eins og þetta hljómar undarlega — samþykkja en hefur ekkert gildi. Rök stjórnarliða og meðreiðarflokka þeirra gegn því að samþykkja ekki orkupakkann eru þau að EES-samningurinn sé í hættu. Segjum við nei, þá ógildist hluti EES-samningsins hugsanlega tímabundið, það á þá væntanlega við um fyrri orkupakkana, og ég get ekki séð að það skipti Íslendinga eða Evrópusambandið neinu máli að þeir falli niður þar til niðurstaða fæst í málið með lögformlegum og varanlegum hætti.

Herra forseti. Það þarf að svara því á fullnægjandi hátt hvort höft íslenskra stjórnvalda á sæstreng yrðu talin óheimil magntakmörkun á útflutningi, auk þess sem slíkt gengi gegn samþykktri innviðaáætlun Evrópusambandsins. Hvar liggja valdmörk valdheimilda stofnana Evrópusambandsins í þessu máli eins og ACER? Vitum við nákvæmlega hvernig þeir muni fara með vald sitt, t.d. eftir tíu ár? Höfum hugfast að í álitamálum er það Evrópusambandið sjálft sem kveður upp dóma, ekki Ísland.

Það hefur verið nefnt í þessari umræðu að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af sæstreng sem yrði lagður til Bretlands vegna þess að Bretland er að hverfa úr Evrópusambandinu eða a.m.k. að reyna það. Enginn veit hvernig samband Breta og Evrópusambandsins í orkumálum kemur til með að þróast í framtíðinni. Það vita ríkisstjórnarflokkarnir ekki og ekki heldur þeir flokkar sem styðja þessa tillögu. Hvernig sem sú lending verður ætti vart að koma neinum á óvart að sambandið hefur skoðun á slíkum sæstreng. Höfum hugfast að búið er að draga sæstreng til Íslands á kort og hann er mikilvægt verkefni í innviðaáætlun Evrópusambandsins. Kortið var teiknað og stimplað í Brussel. Það hefði varla verið gert nema með vitund íslenskra stjórnvalda (BLG: Beiðni.) eða að beiðni þeirra eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson nefndi hér úti í sal.

Herra forseti. Ég vil víkja aðeins að sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra og framkvæmdastjóra orkumála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Yfirlýsingin lýtur að gildi þriðja orkupakkans gagnvart Íslandi. Hafa ber í huga að hér er um yfirlýsingu að ræða sem alls kostar óvíst er hvort hafi eitthvert gildi fyrir t.d. dómstólum ef sú staða kæmi upp. Í yfirlýsingunni er tekið fram að stór hluti ákvæða þriðja orkupakkans, sem varðar viðskipti og grunnvirki fyrir raforku yfir landamæri, hafi ekki gildi eða neina raunhæfa þýðingu fyrir Ísland á meðan enginn raforkusæstrengur er til staðar.

Síðan er bætt við:

„Verði grunnvirki yfir landamæri sett upp í framtíðinni hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvörðunarvald um málefni sem ná yfir landamæri, en ekki ACER.“

Þetta staðfestir að ákvörðunarvald um orkumálefni sem ná yfir landamæri verður samkvæmt Evrópurétti og á EES-svæðinu hýst í Eftirlitsstofnun EFTA að því er Ísland varðar. Gleymum því ekki að Eftirlitsstofnun EFTA heyrir ekki undir íslensk stjórnvöld og fáir munu gleyma því að þessi sama eftirlitsstofnun komst að því í Icesave-deilunni að Íslendingar hefðu brotið lög með því að neita að láta íslenska skattgreiðendur borga skuldir einkabanka. Þessi sama stofnun fór síðan í mál við Ísland og tapaði því eins og við flestöll þekkjum.

Ef við höldum áfram að greina þessa sameiginlegu yfirlýsingu utanríkisráðherra og framkvæmdastjóra orkumála Evrópusambandsins þá segir:

„Gildandi ákvæði þriðja orkupakka ESB hafa engin áhrif á fullveldi ríkisstjórnar Íslands yfir orkuauðlindum Íslands og ákvörðunarvald yfir nýtingu og stjórnun þeirra. Ákvörðunarvald um raforkustrengi milli Íslands og innri raforkumarkaðar ESB liggur alfarið hjá íslenskum stjórnvöldum.“

Ef við berum þessar tvær fullyrðingar saman sjáum við að þær stangast efnislega á. Sú fyrri segir að málefni er varða sæstreng og tengingu orkumannvirkja yfir landamæri falli undir Eftirlitsstofnun EFTA eða ESA. Sú stofnun er óháð ráðherravaldi á Íslandi. Seinni fullyrðingin segir að ákvörðunarvald um raforkustrengi milli Íslands og innri raforkumarkaðar Evrópusambandsins liggi alfarið hjá íslenskum stjórnvöldum. Þessar tvær yfirlýsingar eru því mótsagnakenndar.

Herra forseti. Sagt er að þjóðskáldið Einar Benediktsson hafi selt norðurljósin. Nú er það svo að ekki eru til beinar heimildir um þá ágætu flökkusögu eða þjóðsögu, en Einar var sölumaður af guðs náð og vel trúandi til þess að hafa reynt að selja norðurljósin. Í dag selja ferðaþjónustufyrirtæki ferðamönnum norðurljósaferðir sem aldrei fyrr. Þannig hefur það sem var svo fjarstæðukennt ekki fyrir löngu orðið að arðbærum viðskiptum.

Sæstrengur mun koma í kjölfar þriðja orkupakkans vegna þess að Evrópusambandinu verður það lífsnauðsynlegt að komast yfir hreina orku. Hrein orka mun ekki liggja á lausu innan Evrópusambandsins á komandi árum. Að hafa aðgang að hreinni orku verður Evrópusambandinu því mjög dýrmætt. Með því að Ísland innleiði þriðja orkupakkann er allt til reiðu að stíga skrefið til fulls og leggja sæstreng. Það mun ekki gerast daginn eftir að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Vinstri grænir, Samfylkingin og Viðreisn hafa komið málinu í gegnum þingið í andstöðu við meiri hluta þjóðarinnar og í andstöðu við sína stuðningsmenn. Það mun gerast og ekki innan svo margra ára. Það tók Evrópusambandið tíu ár að koma hráu kjöti frá Evrópu inn á okkar hreina og viðkvæma landbúnaðarmarkað að sjálfsögðu með hjálp þeirra sem hagsmuna höfðu að gæta, Félags atvinnurekenda og Verslunar og þjónustu á Íslandi. Lýðheilsa og ógn við hreina búfjárstofna skipti þá ekki máli.

Auðvitað verður þetta með sama hætti þegar kemur að sæstreng. Það verða íslenskir hagsmunaaðilar sem munu leggja ríka áherslu á að hingað verði lagður sæstrengur, allt regluverkið sé tilbúið, Alþingi hafi innleitt það árið 2019 og við verðum að nýta okkur það vegna þess að það fáist svo gott verð fyrir hreina orku. Rökin verða þau að það sé svo arðbært fyrir íslenskt samfélag. Afleiðingarnar verða síðan þær að raforka á Íslandi til heimila og fyrirtækja mun hækka og að endingu verður sérstaða okkar, okkar mikilvægu lífsgæði, ódýr orka til heimila og fyrirtækja, horfin. Það eru sannarlega lífsgæði að eiga ódýra orku í harðbýlu landi.

Evrópusambandið hefur öflugt regluverk þegar kemur að því að draga úr mengun andrúmsloftsins og er í fararbroddi ríkja á því sviði. Lögð er rík áhersla á það innan sambandsins að minnka brennslu jarðefnaeldsneytis. Evrópusambandið er í þeirri stöðu eitt stórvelda að þurfa að flytja inn helming þeirrar orku sem það notar á sama tíma og birgðir jarðefnaeldsneytis í heiminum fara minnkandi. Stórveldisdraumar sambandsins munu því fjara út takist því ekki að afla sér hreinnar orku. Evrópusambandið kemur til með að verða háð miklum innflutningi á orku í framtíðinni. Iðnaðarráðherra hefur fullyrt að sæstrengur muni ekki koma. Það eru óraunsæjar fullyrðingar ráðherra. Það er svona rétt svipað og halda því fram að talsíminn kæmi aldrei á landsbyggðina. Í orðum iðnaðarráðherra felst mikið vanmat gagnvart Evrópusambandinu og ákveðni þess í málinu.

Þær áskoranir sem sambandið stendur frammi fyrir á komandi árum í orkumálum eru miklar, áskoranir sem það verður að leysa. Þess vegna er sá hræðsluáróður sem stjórnarflokkarnir og stuðningsflokkar þeirra í málinu hafa haldið fram, að EES-samningnum verði jafnvel sagt upp ef við samþykkjum ekki þriðja orkupakkann, algjörlega innstæðulaus að mínu mati. Álit sem utanríkisráðuneytið hefur keypt af fyrrverandi EFTA-dómara um að EES-samningurinn gæti verið í uppnámi er lögfræðilegt. Álit þetta á að vera síðasta tromp stjórnarflokkanna í málinu enda hafa þeir flaggað því mjög. Álitið er ekki pólitískt. Pólitíkin í málinu er sú að Evrópusambandið muni ekki styggja okkur vegna þess að það þjóni ekki þeirra hagsmunum. Evrópusambandinu er mikið í mun að halda okkur góðum, mikið í mun að við verðum áfram í Evrópska efnahagssvæðinu, einfaldlega vegna þess að þeir vita mætavel að við verðum þeim dýrmætari með hverju árinu sem líður.

Í orðum iðnaðarráðherra felst jafnframt að ráðherra er með þessu að lofa upp í ermina á öðrum stjórnmálaflokkum sem hafa fallið gagnrýnislausir fyrir þriðja orkupakkanum og samþykkja hann. Sumir hverjir gerðu það áður en málið var lagt fram og þingskjölin litu dagsins ljós. Í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 713/2009 sem er eitt af fylgigögnum orkupakka þrjú og nálgast má á vef Alþingis segir m.a.:

„Aðildarríkin skulu vinna náið saman og fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku og jarðgas yfir landamæri í því skyni að ná fram markmiðum bandalagsins á sviði orku.“

Skýrara getur það ekki verið, herra forseti, að fjarlægja hindranir.

Nú er það svo að helstu rök þeirra sem styðja þetta mál, rök fyrir því að málið skipti okkur ekki máli eins undarlega og það hljómar, eru þau að sett verði ákvæði í lög um að hingað skuli ekki lagður sæstrengur nema með samþykki Alþingis. Ég held að ekki þurfi að kafa djúpt í málið til að sjá að þegar Evrópusambandið fer að þurfa meiri hreina orku, sem verður ekki innan svo langs tíma, mun lagasetning Alþingis, um bann við sæstreng, næsta víst verða talin hindrun í vegi viðskipta með raforku af hálfu Evrópusambandsins og þar með brot á EES-samningnum. Þá er Evrópusambandið komið í lykilstöðu, sambandið mun einfaldlega stilla okkur upp við vegg: Þið opnið fyrir sæstreng eða við segjum EES-samningnum upp. En fyrst þurfa þeir að sjá til þess að allt verði tilbúið fyrir sæstrenginn með því að tryggja að orkupakki þrjú verði innleiddur.

Þetta mál verður mjög áþekkt kjötmálinu svokallaða, þori ég að fullyrða hér. Við settum lög um frystiskyldu á hráu kjöti vegna þess að við vildum ekki flytja inn hrátt kjöt frá Evrópusambandinu. Það ógnar okkar hreina landbúnaði, okkar viðkvæmu búfjárstofnum, auk þess sem málið er lýðheilsumál. Það tók hagsmunaaðila á Íslandi og Evrópusambandið tíu ár að brjóta þá múra sem við höfðum sett upp. Ég spái því að svipað verði upp á teningnum með sæstrenginn, hann verði að veruleika ekki innan svo langs tíma.

Herra forseti. Ég vil víkja aðeins nánar að fyrirvaranum í tengslum við orkupakkanum sem ríkisstjórnin er svo ánægð með í næstu ræðu minni. Ég óska því eftir að verða settur aftur á mælendaskrá þar sem ég sé að tíma mínum er að ljúka.