149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:10]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Eins og hv. þingmaður væntanlega veit, og ég þakka honum andsvarið, er verið að leggja grunninn að því að við tökum þátt í hinu sameiginlega markaðssvæði Evrópu á raforkumarkaði. Er það ekki rétt, hv. þingmaður? (BÁ: Hver eru efnisatriðin sem þú hefur áhyggjur af?) Ég hef einmitt akkúrat áhyggjur af því, að það sé verið að undirbúa jarðveginn með því að innleiða þetta regluverk. Þá erum við að verða þátttakendur í þessu sameiginlega raforkukerfi þegar sæstrengur kemur. (Gripið fram í.) Og hann kemur. Hann kemur. Það er allt tilbúið, allt til reiðu. Þegar sæstrengurinn er kominn og við förum að selja rafmagnið á þetta sameiginlega svæði þá þekkjum við afleiðingarnar. Þær verða þær að rafmagn til heimila og fyrirtækja í landinu kemur til með að hækka. Það er bara lögmál markaðarins, framboð og eftirspurn. Það er ósköp einfalt. Sporin hræða í þessum efnum eins og ég hef nefnt. Orkupakki eitt gerði það að verkum að rafmagnsverð til húshitunar hækkaði (Gripið fram í.) o.s.frv. (Forseti hringir.) Þetta er ósköp einfalt, hv. þingmaður. Við erum að stíga skrefið hægt og hægt inn í þetta sameiginlega markaðskerfi. Það er eitthvað sem mér hugnast ekki. Það á bara ekki við um okkar aðstæður hér á Íslandi.