149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:34]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrirspurnina og hlý orð í minn garð, ánægjulegt. Það má vel vera að hluti af því sem er að gerast hér sé að við séum ekki að skilja hlutina alveg eins. Mögulega er ástæðan fyrir afstöðu minni sá bakgrunnur minn að búa sig ávallt undir það versta en vona það besta úr hinu starfinu sem ég sinni.

Fyrst og fremst er kannski ástæðan fyrir því að málflutningur minn er eins og hann er að m.a. fræðimenn, sem standa mér augljóslega mun framar í því að túlka reglugerðir eða lög, hafa varað við því að hugsanlega felist valdframsal í innleiðingu þriðja orkupakkans og leggja til að ekki sé farið í það að innleiða hann öðruvísi en að setja ákveðna varnagla við þessu. Þarna er ég hugsa um stjórnarskrána. Við erum ekki í sömu stöðu og mörg önnur ríki, sérstaklega skandinavísk ríki, þar sem hægt er að skuldbinda þjóðir til valdframsals með auknum þingmeirihluta, þ.e. ekki hreinum meiri hluta. Og ég sé ekki betur en að við séum öll hér í þessum sal, hvort sem við höfum mælt fyrir eða á móti þessum orkupakka, sammála um að það sé ekki hægt að innleiða þriðja orkupakkann óbreyttan. Hér þurfi að vera fyrirvarar, hér þurfi að gera athugasemdir við gerðina, annaðhvort með lagalegum fyrirvörum ellegar með því að fara fyrir sameiginlegu EES-nefndina. Ég er eiginlega þeirrar skoðunar að við séum sammála um það. En einhverjir hafa (Forseti hringir.) kannski talað fyrir því hér að það sé algerlega hættulaust að innleiða þennan orkupakka án nokkurra aðgerða. Þá er kannski rétt að koma hér upp og segja það berum orðum að fólk sé tilbúið til þess. Ég er ekki viss um að þingmenn allra þingflokka séu tilbúnir að styðja það.