ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Þetta var akkúrat það sem ég ætlaði að koma inn á í síðara andsvari, álit Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts. Þeir telja í því áliti að lengra sé gengið en áður hefur verið gert ef innleiddar yrðu að óbreyttu téðar reglugerðir sem við erum búin að tönnlast svo oft á og allir vita um hvað er rætt. Ef þær yrðu innleiddar í íslenskan rétt kynni það að brjóta í bága við stjórnarskrána. Í því samhengi þá er mér umhugað um hvort það sé svona hýpóþetísk, með leyfi forseta, hugsun á bak við þetta eða hvort þetta sé í raun, að með þessari innleiðingu myndum við brjóta stjórnarskrána.
Ég er líka svolítið áhugasamur um að fá það fram hvort hv. þingmaður þekki dæmi þess að fyrirvarar eins og þeir sem við erum að gera núna hafi verið settir einhvers staðar áður við innleiðingu gerða og hvort þeir hafi þá haldið gagnvart þjóðarétti. Eins og þetta lítur út fyrir mér sem leikmanni þá er eins og það sé ekki í fullum samhljómi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið heldur sé þar gert ráð fyrir annarri leið sem þeir benda einmitt á að sé einföld og tiltölulega augljós, sú leið sem hér er valin sé ekki gallalaus án þess að þeir útskýri það nánar í álitinu.