ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mér finnst óttalega lélegt að vera kvarta og klukkan er rétt að verða ellefu. Það er búið að halda tvo fundi sem hafa farið rétt yfir miðnætti það sem af er 149. þingi. Það er einn fundur sem var lengri og við fórum beint á nefndafundi eftir það. Ég held að þeir nefndafundir hafi ekkert verið verri en margir aðrir, eða betri ef því er að skipta. Það er ljóst að það eru margir sem þurfa að ræða málin og þess vegna tel ég fulla ástæðu til að við höldum því áfram inn í nóttina til þess að reyna að létta á mælendaskránni. Eins og kom fram hjá hv. þm. Loga Einarssyni eru mörg mál sem á eftir að ræða og því veitir okkur ekkert af tímanum til að ræða þau. Líkt og við vitum eru nefndadagar næstu tvo daga og bara þrír þingfundadagar í næstu viku, þannig að það er full ástæða til þess að þingmenn séu vel vakandi og hressir og taki vel á málinu sem hér er og skiptist á skoðunum en fari ekki að kvarta um vinnuálag eða yfir því að þurfa (Forseti hringir.) að mæta á nefndarfund í fyrramálið klukkan hálfníu og klukkan er ekki orðin ellefu.