ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það er fullt af dögum í júní og ágúst þess vegna þar sem fólk vinnur alla jafna fulla vinnudaga þannig að ég sé enga ástæðu til þess að vera endilega alltaf fram á miðnætti og nætur alla daga. Maður þarf líka að sinna krökkum heima o.s.frv. og ég hélt að við værum að stefna í áttina að því að vera með fjölskylduvænna umhverfi. Það lítur ekki út fyrir það núna. Ég næ varla að vakna með krökkunum mínum í fyrramálið til að sinna þeim áður en ég þarf að mæta á nefndarfund eftir næturfund. Það var annar næturfundur hérna fyrr í þinginu þar sem ég svaf inni í þingflokksherbergi. Það var ekkert rosalega gaman. Það er vinnuálag hérna af og til, vissulega, en það eru tveir mánuðir sem við mætum ekki neitt.