149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:09]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Svo bar við í dag að fram komu nýjar og óvæntar upplýsingar í því stóra máli sem við erum að ræða hér. [Kliður í þingsal.] Herra forseti. Ég ætlast til þess að hér sé haldið uppi reglu á fundinum og bið forseta að beita sér fyrir því.

Þessar óvæntu upplýsingar lúta að því að sjálfur veltiásinn sem allt málið hvílir á, allur málatilbúnaðurinn, lagalegi fyrirvarinn — hann fyrirfinnst ekki. Nema sem einhver hugmynd úti í bæ eða einhvers staðar í einhverri greinargerð, einhver texti eða í einhverri fréttatilkynningu einhvers staðar. Það er algerlega nauðsynlegt að það gefist tækifæri til þess að bera þetta undir sérfræðinga, löglærða menn og stjórnskipunarfræðinga. Það er algjört heiðursmál fyrir Alþingi að slíkt ráðrúm verði gefið í þessu þýðingarmikla máli.