149. löggjafarþing — 105. fundur,  15. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:20]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Forseti vill taka undir þau orð þingmanna að þessi umræða hefur verið löng í dag og undanfarna daga. Hún hefur verið gagnleg og fjörleg á köflum. Margir hafa tekið til máls og þingmönnum verið talsvert mikið niðri fyrir. Það er áhugi á þessu máli, þetta er stórt og viðamikið mál. Forseti skynjar að ekki er mikill áhugi á að hefja langan næturfund og er skylt að taka tillit til þess.

Það eru miklar annir í þinginu og í nefndum. Það eru nefndadagar fram undan og mörg mál bíða afgreiðslu þingsins. Ekki eru margir þingdagar eftir og þess vegna er freistandi að reyna að halda þannig á málum að afgreiða sem mest og sem hraðast en þó með vönduðum hætti.

Það mun hafa verið rætt við þingflokksformenn í byrjun viku um skipulag vikunnar og rætt um að fundir yrðu lengri, það yrðu kvöldfundir. Sennilega var ekki rætt um næturfundi en eitthvað mun skilningur þingmanna hafa verið mismunandi á þessu.

En í ljósi þeirra aðstæðna sem við búum við nú í þinginu leyfir forseti sér þó enn að freista þess að gefa örfáum ræðumönnum kost á að flytja ræður sínar en ekki verður stefnt að löngum næturfundi.