ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég hef áhyggjur af þessu. Til þess að tilgreina eitthvað — það er af mörgu að taka — er einn punktur sá að ACER, sem dæmi, mun skera úr um hvort umsóknir um sæstreng til Íslands verði samþykktar. (Gripið fram í.) Hvorki íslensk stjórnvöld né Alþingi (Gripið fram í: Jú.) munu geta staðið gegn slíkri framkvæmd. (Gripið fram í: Jú.) Þess vegna töldu m.a. lögfræðingarnir Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson (Gripið fram í: Nei.) og sögðu í álitsgerð sinni til utanríkisráðuneytisins að reglugerð 713/2009 samrýmdist ekki stjórnarskrá Íslands. Er þetta nægilegt svar? (Gripið fram í.)