ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef frá fyrsta degi verið mikill stuðningsmaður þátttöku Íslendinga í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Ég hef sýnt þann stuðning í verki hér á Alþingi með því að beita mér fyrir því að unnin verði skýrsla, að norskri fyrirmynd, þar sem teknir verði út kostir og gallar þessa samstarfs. Nýjasta skýrslan sem er fyrirliggjandi um þetta atriði er frá 2007 og ég tel að nú sé liðinn það langur tími og mikil viðbótarreynsla hafi fengist sem geri slíka skýrslu nauðsynlega.
Ég tel að við þurfum að styðjast á hverjum tíma við nýjar eða nýlegar skýrslur í umræðum um þátttöku okkar í þessu samstarfi. Við höfum mikilla hagsmuna að gæta, hvernig við háttum stefnumörkun á hverjum tíma. Það er markmið þessarar skýrslu sem er, eins og ég gat um, gerð að norskri fyrirmynd. Það hefur valist mikið ágætisfólk í þá nefnd sem hæstv. utanríkisráðherra skipaði til að hafa forgöngu um gerð þessarar skýrslu. Ég tel að þar séu mikil verkefni, m.a. leyfi ég mér að vonast til þess að þar verði ítarleg, hagfræðileg greining á fjárhagslegum hagsmunum sem fylgja aðild okkar að þessu samstarfi. Sömuleiðis verði rýnt í til að mynda þann feril sem á sér stað varðandi innleiðingu nýrra gerða og þá hef ég sérstaklega í huga hvort við þurfum ekki að vera virkari á fyrri stigum en kannski í raun hefur borið vitni, líka í þessu máli sem við fjöllum um núna.