eákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég hef einmitt merkt á orðum og gott ef ekki af greinum hv. þingmanns stuðning hans við EES-samninginn. Ég er fyllilega sammála honum í því að við þyrftum að vera virkari á fyrri stigum við innleiðingu mála.
Mig langaði að koma aftur inn á orð hans um fullveldið og efasemdir um fullveldið og hvort þriðji orkupakkinn standist stjórnarskrá okkar og hvort við séum að afsala okkur fullveldi, eins og hann minntist á sérstaklega í ræðu sinni 8. apríl sl. Fullveldi ríkja snýst einmitt um rétt ríkja til að koma fram á alþjóðavettvangi og stofna til þjóðréttarlegrar skuldbindinga. Frá sjónarhóli þjóðaréttar snýst fullveldi einmitt um getu ríkisins til að taka á sig skuldbindingar er varða þátttöku í alþjóðastofnunum og alþjóðasamningum.
Er hv. þingmaður ósammála þessu? Hér steig hann í pontu, herra forseti, og talaði vel og fallega um EES-samninginn en samt sem áður hefur hann þessar gríðarlega miklu efasemdir um þriðja orkupakkann. Ég vil gjarnan fá að heyra skýrar frá hv. þingmanni hvort hann telji að Ísland fái minna út úr því sem smáríki (Forseti hringir.) að taka á sig skuldbindingar sem felast í alþjóðasamningum á borð við EES-samninginn (Forseti hringir.) en fái meira út úr því að standa utan alþjóðasamninga á borð við hann.