ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er einmitt í krafti fullveldis eins og hv. þingmaður gat réttilega um sem við tökum þátt í alþjóðlegu samstarfi og höfum gert það. Við tókum stórpólitíska og mikilvæga ákvörðun 1949 um að gerast stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu. Við tókum mikilvægar ákvarðanir á áttunda áratugnum, m.a. með aðild að EFTA, og síðar á tíunda áratugnum með því að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Það er auðvitað gert í krafti fullveldisins.
Á það er að líta að við erum þjóð og við eigum sem þjóð hagsmuna að gæta. Í alþjóðlegu samstarfi hvar sem er ber okkur að gæta okkar hagsmuna og í þessu máli eru mikilvægir hagsmunir undir, þ.e. forræði þjóðarinnar yfir sínum orkuauðlindum. Hér liggur fyrir álitsgerð sem ég hef farið (Forseti hringir.) mjög ítarlega yfir í mínum ræðum og margir aðrir ræðumenn sem vekur upp alvarlegar spurningar. (Forseti hringir.) Og þá er það skylda alþingismanna að stíga með gát og (Forseti hringir.) varlega til jarðar.