149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hv. þingmann varðandi EES-samninginn sem slíkan. Nú er þetta okkar mikilvægasti tvíhliða samningur og um hann hefur ríkt þverpólitísk sátt í um aldarfjórðungsskeið eins og við þekkjum. Innleiðing þessa orkupakka getur gert það að verkum að sú pólitíska sátt sem ríkt hefur um samninginn komist í uppnám. Ef ein ástæðan er sú að stjórnvöld eru nauðbeygð til að innleiða (Forseti hringir.) eitthvað sem við erum ekki sátt við, hefur hv. þingmaður þá ekki áhyggjur af því (Forseti hringir.) að það verði upphafið að því að sú þverpólitíska sátt sem ríkt hefur um samninginn fari forgörðum?