149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ætli því sé ekki öfugt farið, að maður hafi meiri áhyggjur af því sem verið er að fabúlera í þessum þingsal um þennan samning og þriðja orkupakkann? Ég verð að viðurkenna það sjálfur að ég hef kannski ekki verið nógu duglegur í gegnum árin við að verja EES-samninginn, verið einn af þeim sem hafa gagnrýnt hluti hægri vinstri sem snúa að þessum samningi. Ég er alveg á mörkunum að muna eftir því hvernig það var fyrir EES-samninginn á Íslandi, samt er ég nú að verða fimmtugur. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því hvernig menn tala um þessa hluti. Ég held það væri mjög hollt fyrir okkar samfélag að taka efnislega góða umræðu um EES-samninginn og á vegum ríkisstjórnarinnar er verið að vinna skýrslu sem snýr að því.

Við þurfum líka að taka miklu meiri umræðu um orkumál, að það verði meira rætt í þessum þingsal. Það hef ég margoft bent á. Ég hef miklu meiri áhyggjur af þessari umræðu, (Forseti hringir.) hún er byggð á rangfærslum. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því varðandi EES-samninginn og kynningu fyrir þjóðinni (Forseti hringir.) hversu illa hefur verið farið með hluti — á erlendu máli heitir þetta „disinformation“, eða vísvitandi blekkingar. Ég hef áhyggjur af slíkum hlutum.