ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Mig langaði að taka undir með hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur að umræðan hefur verið afar góð og gagnleg og það hafa verið skiptar skoðanir og hér hafa komið upp alls konar sjónarmið aftur og aftur. Umræðan gengur vel og ekki ástæða til annars en að halda henni samfleytt áfram til að ná betri árangri. Það er alltaf erfitt að segja til um það hversu lengi hún stendur. Nú vinnst vel á mælendaskrána þannig að ég sé enga ástæðu til að klára og enginn munur á því að klára núna eða eftir einhvern smátíma.