149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:24]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það liggur við að ég beri af mér sakir eftir ræðu hv. þingmanns sem talaði hér á undan mér. Ég kannast ekki við að hingað hafi komið þingmenn allra flokka og kvartað yfir því að fundað væri fram á nótt.

Ég vil hrósa virðulegum forseta fyrir góða fundarstjórn. Ég skil ekki alveg þennan málflutning. Hér höfum við veitt færi á að ræða þessi mál í þaula. Það er enginn að agnúast út í það nema þeir sem vilja ræða þau mál í þaula. Hér talar hv. þm. Birgir Þórarinsson um að hann og fleiri séu tilbúnir að ræða þessi mál fram á morgun. Ég tek undir með hv. þingmanni, það er skynsamlegt að gera það ef við teljum málið af þeirri stærðargráðu að við ræðum það áfram og í þaula.

Ég vil aftur hrósa virðulegum forseta fyrir góða fundarstjórn.