149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:26]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég geri ráð fyrir því að virðulegur forseti sé vandur að virðingu sinni. Hæstv. forseti fór yfir það áðan hvert mat hans væri á því hversu langur þingfundur yrði til viðbótar. Ég hygg að það séu liðnir tveir klukkutímar síðan það gerðist að hæstv. forseti tilkynnti þinginu að þingfundi myndi senn ljúka.

Maður veltir því fyrir sér (Gripið fram í.) hvers vegna hv. þingmenn, sumir hverjir a.m.k., virðast vilja að umræða um þetta mikilvæga mál fari fram í skjóli nætur. Líta þeir svo á að hér sé verið að fremja einhvers konar myrkraverk sem betra sé að leyfa almenningi ekki að fylgjast með? Líður þeim betur með að rökræða um þetta mál fái ekki að heyrast? (Gripið fram í.)