ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég er afar hugsi yfir þessu. Þegar þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sem er flokkur utanríkisráðherra, bendir í eina átt og á sama tíma bendir formaður utanríkismálanefndar, sem er stjórnarliði og Sjálfstæðismaður, í aðra átt, en svo kemur þriðji maðurinn úr Sjálfstæðisflokki og veifar frumvarpi til laga frá öðrum ráðherra úr Sjálfstæðisflokki og allir uppástanda að þetta sé fyrirvarinn, þetta sé fyrirvarinn, þá veit ég eiginlega ekki hvað ég á að halda. Ég verð að fullyrða það eftir allar þær ávítur sem við höfum setið undir, Miðflokksmenn, um að ala á ótta, þá eru þær spurningar sem við höfum borið upp bara hjóm eitt miðað við þessi vinnubrögð. Hér er raunverulega verið að ala á ótta. Hvernig á fólk að geta treyst þessu ef þetta eru vinnubrögðin sem búast má við af hinu háa Alþingi? (Forseti hringir.) Ég spyr hv. þingmann: Getur verið að þetta sé svona (Forseti hringir.) í fleiri málum?
(Forseti (WÞÞ): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörk.)